Já vikan byrjaði með látum, bankinn okkar kominn í eigu ríkisins. Ég veit í raun ekki hvað mér á að finnast um þetta allt…enda virðast skoðanir almennings litlu skipta..
Annars var þetta fínn mánudagur, Natalía vaknaði með skemmtilega spurningu í morgun, “mamma hvað er langt þangað til jólin koma?” Ég var nú ekki alveg viss (kannaði það svo og það eru 86 dagar), þá sagði hún “ég hlakka svo til jólanna því þá fáum við jólatré”. Hún er svo mikið yndi þessi skvísa.
Vinnan var fín í dag, miklu afkastað, er búin að vera í mikilli tölvuvinnu síðustu vikuna og verð satt best að segja ágætlega fegin að fá “venjulegan” dag á morgun. Ekki það að enginn dagur er eins, það er líka það sem er það skemmtilega við vinnuna, nóg að gera og alltaf eitthvað nýtt
Ég fór með Elfu sem er tannsmiður hjá tannréttingasérfræðingnum á hæðinni í göngu um Elliðaárdalinn áðan, hún býr í nágrenninu svo það er upplagt fyrir okkur að hittast og labba saman.
Annars er afmælishrinan að hefjast og óska ég öllum þeim sem eiga afmæli núna og á næstunni til hamingju með afmælið
Kveðja Rakel