Við fjölskyldan skelltum okkur á Esjuna í dag, fórum reyndar ekki alla leið, kláruðum cirka helminginn. Natalía var ekkert smá dugleg gekk þetta allt sjálf og þurfti ekkert að halda á henni. Ótrúlega gaman hjá okkur, settumst niður með nesti og gengum svo niður, hlupum reyndar neðsta partinn og alveg niður að bíl. Eftir gönguna fórum við svo í sund.
Ég er ekki frá því að maður hafi tekið smá lit, er alla vega frekar rjóð í kinnum. Planið er að fara aftur í sumar og reyna þá að fara lengra og vinna okkur svo hægt og rólega nær toppnum, það er nú ekki hægt að ætlast til að fjögurra ára skvísa fari upp í topp í fyrstu tilraun, þó svo þreytan hafi ekki sagt til sín í dag
Ohh mig langar svo að labba Esjuna enda er það eitt af sumarheitunum mínum. Reynum svo að hittast fljótlega. Eigðu góðan dag á afmælisdaginn okkar;)