- 1
Í kvöld var keilumót, vinnan mín á móti tannréttingastofunni sem er á sama stað og við erum.
Við unnum nú ekki en tókum okkur gasalega vel út! eins og má sjá hér að ofan.
Mér hefur reyndar sjaldan gengið eins illa í keilu, var yfirleitt yfir 100 stigum hér áður fyrr þegar maður var aðeins duglegri að skella sér keilu, en núna náði 67 stigum…
Eftir keiluna fórum við að borða á Hornið og fengum svakalega góðar pizzur, namm er enn með bragðið af pestópizzunni í nefinu. Krummi var nú líka stoltur af mér þegar ég kom heim og tilkynnti honum að ég hefði drukkið næstum því hálft rauðvínsglas!
Sem er mikið fyrir mig því ég drekk aldrei rauðvín og hann er búinn að hafa mikið fyrir því að reyna að kenna mér það.
Annars er allt við það sama hjá okkur, helgin að skella á og nóg að gera að venju.

